Skagamenn heimsóttu okkur Grindvíkinga tvisvar í liðinni viku og er skemmst frá því að segja að Grindavík vann báðar viðureignir. Í bikarnum unnum við nokkuð öruggan sigur síðastliðinn þriðjudag, 4-1. Á laugardag mættust liðin svo í deildinni og fór leikurinn 3-2 fyrir Grindavík.
Grindvíkingar komust í 3-1 á 73. mínútu. Mörk Grindvíkinga skoruðu þeir Jósef Kristinn Jósefsson og Tomislav Misura en þriðja markið var sjálfsmark. Garðar Gunnlaugsson klóraði svo í bakkann á 91. mínútu en nær komust Skagamenn ekki og fyrsti stig sumarsins komin í hús.