Daníel Leó og Stefán Þór í U19

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Daníel Leó Grétarsson leikmaður Grindavíkur hefur verið valinn í U19 ára landslið Íslands sem mætir Skotum í tveimur vináttulandsleilkjum gegn Skotum í byrjun september. Stefán Þór Pálsson leikmaður Grindavík sem er í láni frá Breiðablik, er einnig í hópnum.

Daníel Leó hefur verið fastamaður í Grindavíkurliðinu sem trónir á toppnum í 1. deild karla og staðið sig feikilega vel. Þá er Stefán Þór markahæsti leikmaðurinn í 1. deildinni.