Grindavík sigraði sinn fjórða leik í röð í 1.deild kvenna á föstudaginn þegar stelpurnar lögðu KR 2-1.
Dernelle L Mascall skoraði bæði mörk liðsins í sitt hvorum hálfleiknum.
Var leikurinn á föstudaginn fyrsti leikur í seinni umferðinni. Næst fara stelpurnar í Keflavík 18.júlí.
Grindavík er komið með 20 stig eftir 8 umferðir og eru á toppnum í B riðli. ÍA og Fylkir berjast um toppsætið í A riðli og hafa skilið sig frá næstu liðum.