Nú er stóri dagurinn runninn upp. Tekst Grindavík að vinna Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð, í þriðja sinn í sögu félagsins og í fyrsta sinn á heimavelli? Úrslitaleikur Grindavíkur og Stjörnunnar hefst kl. 19:15. Forsala aðgöngumiða gengur vel og eru fáir miðar eftir. Þeir miðar sem eftir eru verða seldir í Salthúsinu í dag, sunnudag, frá og með kl. 14:00. Grindvíkingar eru einnig beðnir að athuga eftirfarandi:
- Upphitun í Salthúsinu í dag. Fyrstu hamborgararnir á grillinu á Salthúsinu verða tilbúnir kl. 16:00.
- Að sjálfsögðu mæta allir Grindvíkignar í gulu á leikinn.
- Húsið opnar kl. 18:15. Vinsamlegast mætið tímanlega. Röðum okkar þétt og snyrtilega í húsið svo allir komist fyrir!
Svo höldum við uppi góðri söngstemmningu allan tímann og hvetjum okkar menn til dáða!
Áfram Grindavík!