Verðlaun fyrir úrvalslið síðari hlutans í Domino´s deild karla voru afhent í dag þar sem Grindvíkingurinn Þorleifur Ólafsson var valinn duglegasti leikmaðurinn og Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindvíkinga var valinn besti þjálfarinn.
Úrvalslið síðari hluta umferðinnar var svona skipað:
- Justin Shouse – Stjarnan
- Elvar Már Friðriksson – Njarðvík
- Guðmundur Jónsson – Þór Þorlákshöfn
- Kristófer Acox – KR
- Michael Craion – Keflavík
Besti leikmaður síðari umferðinnar:
- Michael Craion – Keflavík
Besti þjálfari síðari umferðinnar:
- Sverrir Þór Sverrisson – Grindavík
Dugnaðarforkurinn:
- Þorleifur Ólafsson – Grindavík