Bragi Hinrik Magnússon hefur sagt upp störfum sem þjálfari Grindavíkurstúlkna í körfuboltanum. Liðið hefur farið illa af stað í deildinni og tapað fyrstu fimm leikjum sínum. Bragi vildi ekki tjá sig um ástæðu uppsagnarinnar við heimasíðu UMFG.
Grindavíkurstelpur eiga leik gegn Fjölni í Dalshúsum í kvöld en þar mun Ellert Magnússon stjórna liðinu.
Ekki hefur verið ráðinn nýr þjáfari að svo stöddu.