Stjórn Samveru, styrktarsjóðs fyrir grindvísk börn, vill komandi eftirfarandi upplýsingum á framfæri:
Kæru Grindvíkingar. Við viljum minna á að sjóðurinn okkar er enn virkur, þó það hafi vissulega gengið vel að koma styrkjum út.
Á dögunum tók stjórn sjóðsins þá ákvörðun að útvíkka úthlutunarreglur hans og nú geta forráðamenn einnig sótt um í sjóðinn vegna tómstunda barna frá Grindavík, t.d vegna náms í tónlistarskólum.
Við umsókn þarf að koma eftirfarandi að koma fram eða fylgja:
– Fyrir hvaða barna/hóp/verkefni er sótt um
– Kvittanir fyrir útlögðum kostnaði
– Bankaupplýsingar fyrir endurgreiðslu.
Við hvetjum alla til að sækja um og senda á okkur spurningar ef einhverjar vakna. Umsóknir og spurningar má senda á netfang sjóðsins samvera@umfg.is