Knattspyrnudeild UMFG samdi í gær við framherjann Guðmund Magnússon. Hann var síðast á samningi hjá ÍBV en var lánaður til Víkings Ólafsvík s.l. sumar. Guðmundur spilaði með Fram í Inkasso deildinni 2017 og skoraði hann þá 22 mörk í deild og bikar. Síðastliðið sumar skoraði hann 4 mörk í 8 leikjum hjá Víkingi Ó og 3 mörk fyrir ÍBV í 11 leikjum.
Guðmundur er boðinn velkominn til liðs við Grindavík í fréttatilkynningu frá deildinni.
Meðfylgjandi mynd er af Guðmundi og Gunnari Má Gunnarssyni, formanni knattspyrnudeildar UMFG