Fjórir Grindvíkingar keppa í U-18 í pílukasti

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Fjórir drengir úr Grindavík eru nú á leið til Tyrkkands að keppa á WDF Eurocup Youth. Þessir strákar eru allir í unglingalandsliði Íslands í pílukasti undir 18 ára. Þeir eru f.v. Tómas Breki Bjarnason, Tómas Orri Agnarsson, Alexander Veigar Þorvaldsson og Alex Máni Pétursson. Hægt er að fylgjast með þessum flottu strákum í gegnum Facebook síðu U-18 í pílukasti. 

Við óskum þeim góðs gengis á mótinu og hlökkum til að fylgjast með!