Grindavík lagði FH á heimavelli 2-1

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík er nú komið í 4. sæi í Inkasso-deild kvenna eftir sigur á FH á heimavelli í gær. Þetta var fyrsta tap FH en fyrir leikinn voru þær í 2. sæti og Grindavík í 6. sæti. FH situr nú í 3. sæti deildarinnar. Við óskum stelpunum til hamingju með sigurinn en mörkin skoruðu þær Írena Björk Gestsdóttir á 14. mínútu leiksins og Nicole C. Maher sem skoraði á 79. mínútu en hún kom inn á sem varamaður á 70. mínútu. 

Næsti leikur hjá stelpunum er föstudaginn 21. júní í Grafarvoginum á móti Fjölni.