Lokahóf KKÍ fór fram í hádeginu á föstudag þar sem tímabilin í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins voru gerð upp.
Grindavík sigraði 1. deild kvenna þetta árið eftir úrslitaeinvígi við Fjölni sem varð þó deildarmeistari. Liðið hefur því endurheimt sæti sitt í efstu deild að ári.
Verðlaunin í 1. deild kvenna dreifðust eftirfarandi.
Besti ungi leikmaðurinn
Vilborg Jónsdóttir · Njarðvík
Besti erlendi leikmaður ársins
Tessondra Williams · Tindastóll
Þjálfari ársins
Jóhann Árni Ólafsson · Grindavík
Úrvalslið 1. deildar kvenna 2018-2019
Kamilla Sól Viktorsdóttir · Njarðvík
Hrund Skúladóttir · Grindavík
Sylvía Rún Hálfdánardóttir · Þór Akureyri
Rut Herner Konráðsdóttir · Þór Akureyri
Hulda Ósk Bergsteinsdóttir · Fjölnir
Leikmaður ársins í 1. deild kvenna 2018-2019H
Hrund Skúladóttir · Grindavík
Vefsíðan óskar Hrund og Jóhanni Árna innilega til hamingju með árangurinn.
Mynd: www.karfan.is