Aðalfundur Golfklúbbs Grindavíkur fer fram laugardaginn 2. febrúar 2019 kl. 13:00 í golfskálanum að Húsatóftum.
Dagskrá aðalfundarins er svohljóðandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
4. Kosning formanns
5. Kosning stjórnarmanna
6. Kosning endurskoðunarmanna
7. Árgjöld 2019
8. Fjárhagsáætlun 2019 lögð fram
9. Önnur mál
Stjórn GG vill hvetja félagsmenn til þess að mæta á fundinn. Sérstaklega er óskað eftir áhugasömu fólki til stjórnar og nefndarstarfa. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Halldór (gggolf@gggolf.is)