Reynslubolti til liðs við Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík hefur gert 2ja ára samning við markmanninn Vladan Djogatovic.  Vladan er Serbi og kemur frá liðinu FK Javor í Serbíu.  Hann hefur spilað 23 leiki í haust með því liði og er liðið sem stendur í efsta sæti í serbnesku fyrstu deildinni.  Vladan er reynslumikill markmaður en hann hefur spilað vel á þriðja hundrað leiki í efstu deildum í Serbíu.  Knattspyrnudeildin býður Vladan velkominn til Grindavíkur segir í tilkynningu.

Við óskum bæði Vladan og Knattspyrnudeildinni til hamingju.