Lokaleikur knattspyrnusumarsins á morgun – og svo lokahóf!

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík leikur sinn síðasta keppnisleik þetta árið á morgun, þegar liðið tekur á móti ÍBV. Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetjum við Grindvíkinga til að loka þessu fótboltasumari með stæl og fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á okkar mönnum.

Um kvöldið er svo komið að lokahófi knattspyrnudeildarinnar, en það verður haldið í íþróttahúsinu. Húsið opnar kl. 20:00 og borðhald kl. 20:30. Helgi Björns og reiðmenn vindanna/SSsól leika fyrir dansi að borðhaldi loknu. 

Miðasala er hafin í Gula húsinu hjá Eiríki (s. 863-2040), hjá Ragnheiði (s. 865-5218) og hjá Petru Rós (s. 869-5570)