Grindavíkurkonur á taplausri braut

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavíkurkonur unnu góðan 2-1 sigur á KR í Pepsi-deildinni hér í Grindavík í gær. Var þetta 5 deilarleikur Grindavíkur í röð án taps, en þær töpuðu síðast þann 15. maí þegar Valskonur komu í heimsókn. Grindavík er nú í 5. sæti deildarinnar með 9 stig eftir 8 leiki.

Mörk Grindavíkur í gær skoruðu þær Helga Guðrún Kristinsdóttir og Rio Hardy en mörkin komu með örstuttu millibili á 28. og 29. mínútu. 

Næsti leikur liðsins er útileikur gegn FH 10. júlí kl. 19:15.

Umfjöllun Fótbolta.net um leikinn

Viðtal við Ray eftir leik: