Flottur árangur á Íslandsmóti í tækni

Ungmennafélag Grindavíkur Taekwondo

Flottur árangur hjá iðkendur Taekwondo deildar UMFG á íslandsmótinu í tækni sem haldið var í gær 3. nóvember í Laugardalnum í Reykjavík.

Björn Lúkas Haraldsson – Brons í svartbeltisflokki
Ylfa Rán Erlendsdóttir – Brons í rauðbeltisflokki
Gísli Þráinn Þorsteinsson – Silfur í rauðbeltisflokki

Ylfa og Gísli urðu í 4. sæti í sterkum rauðbeltisflokki í paraformi
Björn, Ylfa og Gísli urðu í 4. sæti í mjög sterkum svartbeltisflokki í hópaformi

Jón Aron Eiðsson, Jakob Máni Jónsson og Sigurður Ágúst Eiðsson stóðu sig líka vel en náðu ekki að vinna til verðlauna að þessu sinni.

Innilega til hamingju með árangurinn.