Mótið fer fram á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.
Skráningin fer fram hérna: http://skraning.umfi.is/
Unglingalandsmótin hafa verið afar vinsæl frá upphafi en keppendur á síðasta móti voru um 2000 talsins. Keppnisgreinar á mótinu verða
fimleikar
frjálsíþróttir
glíma
golf
hestaíþróttir
knattspyrna
körfubolti
motocross
skák
stafsetning
sund
strandblak
og upplestur.
Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta keppt á mótinu en einnig eru í boði fjölbreytt verkefni og afþreying fyrir þá sem yngri eru. Foreldrum og fullorðnum mun ekki leiðast á Höfn en auk þess að fylgjast með íþróttakeppninni þá geta þau tekið þá í mörgum viðburðum.
Hlökkum til að sjá ykkur á Höfn.
Einnig er vert að geta þess að það er hægt að skrá sig sem einstaklingur í boltagreinar eða búa til lið ef það eru nokkrir saman. Það má líka hringja í Bjarna Már Svavarsson, Stjórnarmann í UMFG, í S:8917553 og fá frekari upplýsingar.
Eins og undanfarin ár greiðir aðalstjórn helming keppnisgjaldsins hjá þeim sem skrá sig undir merkjum Ungmennafélags Grindavíkur.
Fullt keppnisgjald er 6000.- kr og er hlutur UMFG því 3000 kr. Innifalið í keppnisgjaldi er tjaldstæði fyrir alla fjölskylduna um verslunarmannahelgina auk þess sem frítt er inná alla viðburði sem tengjast mótinu.
Þegar búið er að skrá á mótið er þá ýtt á hnapp sem stendur “ég greiði félaginu mínu” og eru allar bankaupplýsingar á þeirri sömu síðu.