Sjávarréttahlaðborð Sunddeildar UMFG verður haldið á Brúnni restaurant, föstudaginn 8. nóvember. Sunddeildin hefur fengið til liðs við sig meistarakokka Bláa lónsins sem ætla að töfra fram dýrindis sjávarrétti úr hafinu umhverfis Grindavík.
Matseðill:
- Blandað sushi
- Graflax
- Heitreykt bleikja
- 2 Tegundir síld
- Sjávarréttir í kókos
- Ristaðar gellur
- Steinbítur í humarsósu
- Steinbítskinnar með lime og chili
- Saltfiskur með möndlum og rækjum
- Pönnusteiktur þorskhnakki
Veislustjóri: Kjartan Adolfsson.
Grindvísk tónlistaratriði:
Páll Jóhannesson og félagar
Tommi rafvirki og félagar
Dagbjartur Willards og Bjarni Kristinn
Jón Fanndal og Bjarni Kristinn
Miðasala fer fram á skrifstofu verkalýðsfélagsins, mánudag, þriðjudag, fimmtudag og föstudag frá 12:15-16:00
og kostar miðinn aðeins kr. 5000.-