Valur Orri Valsson semur við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavík hefur samið við leikstjórnandann knáa Val Orra Valsson um að leika með félaginu næstu tvö keppnistímabil í Subway-deild karla. Val Orra ættu allir íslenskir körfuboltaáhugamenn að þekkja vel þar sem hann byrjaði sinn meistaraflokks feril einungis 14 ára og spilaði hann einnig í háskóla í bandaríkjunum frá árunum 2016 til 2020.

Hann hefur leikið með sterku liði Keflavíkur síðustu tímabil og er þetta því mikill styrkur fyrir félagið.

„Við höfum haft augastað á Vali Orra lengi. Þegar hann kom til íslands úr háskólaboltanum fyrir 3 árum. Þà höfðum við samband við hann til að heyra hvað hann hafði hugsað sér að gera. Núna er hann mættur og ætlar að sýna okkur og ykkur hversu frábær leikmaður hann er. Ég er að kynnast drengum upp á nýtt því ég hef aðeins þekkt hann sem leikmann à vellinum. En ég er viss um að Grindavík sé frábær klúbbur fyrir Val Orra. Hérna eru allir jafningjar og það fá allir tækifæri likt og við sýndum á síðasta tímabili þar sem 5 íslenskir leikmenn snéru við leikjum þegar illa gekk,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, formaður Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.

Grindavík hefur nú þegar samið við DeAndre Kane, Daniel Mortensen og Dedrick Basile um að leika með félaginu á næstu leiktíð. Leikmannahópur Grindavíkur fyrir næsta tímabil í Subway-deild karla er því sannarlega farinn að taka á sig mynd.

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur býður Val Orra velkominn til félagsins og hlökkum við til að sjá hann í gulu í nýrri HS Orku Höll á næsta tímabili.

Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar er að vinna dag og nótt til þess að koma með fréttir frá kvennaliðinu og er von um að þær komi fyrir helgi.

Áfram Grindavík!