Undanúrslit Iceland Express deildar karla hefjast í kvöld þegar KR og Þór Þorlákshöfn ríða á vaðið. Við hefjum leik á morgun og er andstæðingur okkar Stjarnan en við eigum harma að hefna síðan í fyrra þegar Stjarnan sló okkur út í 8-liða úrslitunum!
Við fórum auðveldlega í gegnum fyrstu umferð eins og flestir áttu von á og unnum Njarðvík 2-0. Njarðvík náði reyndar að búa til leik úr seinni leiknum en sigur okkar var samt varla í hættu. KR vann sömuleiðis sína rimmu 2-0 og kom það mér á óvart, ég átti von á meiru frá Bárði vini mínum og lærisveinum hans frá Sauðárkróki. Hinar rimmurnar 2 fóru í oddaleik og var í báðum tilfellum um magnaða leiki að ræða! Þór vann Snæfell í mjög sveilukenndum leik og Stjarnan vann Keflavík eftir framlenginu og því verður Stjarnan keppinautur okkar í undanúrslitunum.
Ég skrifa betur um þá rimmu í kvöld eða á morgun.
Einar Hannes og Óli Björn liggja víst undir feld og ætla að koma á óvart varðandi umgjörðina á leiknum og verður fróðlegt og spennandi að sjá hvað kemur út úr því!
Meira í kvöld eða morgun,
áfram Grindavík!