Grindvíkingar geta nýtt sér suðurstrandaveginn í kvöld og rifjað upp lokin á síðasta tímabili því Grindavík mætir Þór frá Þorlákshöfn í kvöld
Er þetta leikur í þriðju umferð Dominosdeildarinnar þar sem Grindavík hefur unnið báða sína leiki. Þór sigraði ÍR í síðustu umferð en töpuðu með tveimur stigum fyrir Njarðvík í fyrstu umferðinni.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 í íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn.