Þetta er í annað sinn sem Sverrir Þór stýrir liði Grindavíkur en hann gerði liðið að Íslandsmeisturunum tímabilið 2012-2013 og bikarmeisturunum árið 2014. Sverrir Þór þjálfaði einnig kvennalið Grindavíkur tímabilið 2015 og varð liðið bikarmeistari undir hans stjórn.
„Ég var ekki á leiðinni í þjálfun en þegar þetta tækifæri kom upp þá varð ég mjög spenntur. Eftir að hafa hugsað þetta vel og rætt við Jóhann Þór þá ákvað ég að kýla á þetta. Ég á mjög góða minningar frá tíma mínum með Grindavík og hugsa að ég hefði ekki tekið við neinu öðru liði á þessum tímapunkti. Þetta tækifæri hreyfði við mér og er mjög spenntur að hefjast handa og hitta leikmannahópinn,“ segir Sverrir Þór.
Nýtt þjálfarateymi hitti leikmannahópinn núna síðdegis og stýrði Sverrir Þór sinni fyrstu æfingu. Fyrsti leikur Sverris með liðið verður föstudaginn 4. mars næstkomandi gegn Vestra í HS Orku Höllinni.
Velkominn aftur Sverrir!
Áfram Grindavík!