Sumaræfingar hjá körfuboltanum

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur mun standa fyrir sumaræfingum fyrir krakka í sjöunda flokk og eldri.

Kynningarfundur er á morgun, þriðjudaginn 5.júní, í íþróttahúsinu klukkan 15:00 og æfing strax á eftir.  Það er Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður og þjálfari yngri flokka Grindavíkur, sem mun stýra æfingunum og Óli Baldur Bjarnason, ÍAK einkaþjálfari, mun sjá um styrktarþjálfunina.

Æfingarnar verða í sumar frá klukkan 15:00-17:00 á mánudögum til fimmtudaga og eru allir velkomnir sem eru í 7.flokki og eldri, strákar og stelpur.