Leikur kvöldsins er Stjarnan-Grindavík sem fram fer í Ásgarði klukkan 19:15.
Aðrir leikir eru Snæfell-ÍR og Keflavík-Skallagrímur. Aðeins hefur dregið í sundur milli liðanna frá því í fyrra þegar þau mættust í úrslitum, Grindavík í efri hlutanum en Stjarnan í því sjöunda.
En leikir Grindavíkur gegn liðunum í 6-9 sæti hafa reynst hvað erfiðastir í vetur, tap gegn Þór og ÍR.
Fyrri leikur liðanna í vetur fór 87-67 fyrir Grindavík. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru stuðningsmenn hvattir til að mæta í þennan síðasta leik fyrir bikarúrslitin.