Sigur á Njarðvík

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík er í 5-6 sæti í Dominosdeild kvenna eftir sigur á Njarðvík 79-72

Leikurinn í gær var bæði kaflaskiptur og æsispennandi.  Fyrstu 10 mínúturnar voru jafnar en tók þá Grindavík forystuna og komst í 12 stiga forskot, héldu Njarðvíkurstelpum stigalausum í 7 mínútur.

Heimastúlkur rifu sig í gang og komust í 7 stiga forskot um miðjan þriðja leikhluta.  Var Crystal Smith þá búin að skora 20 stig af 36 stigum Grindavíkur.  Íslensku stelpurnar komu þá meira inn í leikinn, jöfnuðu og var leikurinn í járnum fram undir leikslok. Lokatölur voru 65-65 og framlengja þurfti til að útkljá málið.

Grindavík sigraði í framlenginu, lokatölur 79-72.

Crystal Smith var stigahæst með 37 stig, Petrúnella var með 20 stig og 13 fráköst.

Næsti leikur í deildinni er gegn Snæfell 28.nóvember.