Sigur á Haukum

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík tók á móti Haukum í Lengjubikarnum í gærkveldi.

Sigurinn var nokkuð öruggur, 97-71.  Í fyrsta leikhluta var jafn á liðunum en undir lok hans tók Grindavík forystu og bætti í það sem eftir lifði leiks.   

Enn og aftur er það feiknaöflug breidd sem skóp sigurinn, 11 menn skoruðu og þeir leikmenn sem lítið hafa fengið að spila fengu fjölda mínútna.

Páll Axel var hinsvegar stigahæstur með 22 stig og 4 fráköst. Þorleifur 14 stig og Bullock 11.

Grindavík sigraði því sinn riðil örugglega með fullt hús stiga og mætir sigurvegara í A riðli, Þór Þorlákshöfn, í undanúrslitum föstudaginn 2.des klukkan 18:30. Ef Grindavík vinnur þann leik þá fer úrslitaleikurinn fram 3.des klukkan 16:00 en úrslitaleikirnir verða spilaðir í DHL höllinni.  Hinn undanúrslitaleikurinn er á milli Keflavík og Snæfells.

 

Tölfræði KKÍ