Guðmundur Bragason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í körfubolta.
Bragi Magnússon hætti á dögunum og fyllti Ellert Magnússon í skarð hans þangað til að nýr þjálfari var ráðinn. Guðmundur mun stýra liðinu og verður Crystal Smith honum til aðstoðar.
Crystal kom til landsins í október og hefur spilað mjög vel með liðinu, Guðmund þarf ekki að kynna en hann er einn farsælasti leikmaður Grindavíkur og verður gaman sjá hvernig þeim reiðir af í vetur.