Bikarmeistararnir úr Grindavík mæta Njarðvík í Domionsdeild karla í kvöld klukkan 19:15. Leikurinn fer fram í Njarðvik. Fyrir leikinn er Grindavík í 3 sæti og mun það ekki breytast eftir kvöldið, 4 stig í Njarðvík sem er í 4. sæti og 6 stig í Keflavík sem er í öðru sæti.
Njarðvík getur hinsvegar ýtt sér aðeins frá þéttum pakka liða í 4-6 sæti.
Form liðanna í síðustu leikjum er nokkuð ólíkt. Okkar menn ánægðir eftir bikarsigurinn í síðustu viku og hafa unnið alla leiki sína í febrúar.
Njarðvík hefur einnig spilað þrjá leiki í deildinni í febrúar og tapað tveimur síðustu. Þeir eru þó alltaf hættulegir á heimavelli og einnig alltaf hætta á að okkar menn séu ennþá of hátt uppi.
Njarðvíkingurinn Sverrir Þór Sverrisson nær nú líklega að koma þeim niður á jörðina fyrir leikinn og því von á skemmtilegum leik í kvöld sem markar upphaf Nettómótsins sem fram fer í Reykjanesbæ um helgina.