Naumt tap í Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavíkurstelpur tóku í kvöld á móti Njarðvíkurstelpum í Röstinni í Grindavík

 dómarar leiksins voru þeir Björgvin Rúnarsson og Georg Andersen.
 
Ljóst var að bæði lið myndu selja sig dýrt Grindavíkurstúlkur í mikilli fallbaráttu við Fjölnir en Njarðvíkurstúlkur í harðri baráttu við Snæfellsstúlkur um fimmta sætið.
 
1. leikhluti var þó rólegur, bæði lið hittu ílla, og spiluðu harða vörn, staðan eftir fyrsta leikhluta var 16-14.
 
2. leikhluti var keimlíkur þeim fyrsta Grindavíkurstúlkur tóku þó 8-0 áhlaup og komust 10 stigum yfir, Sverri Þór Sverrisson þjálfari Njarðvíkur tók þá leikhlé, leikur liðsins breyttist eftir það en Njarðvíkurstúlkur voru óheppnar með skotin sín, Fields skoraði þó tvo þrista rétt fyrir leikh´lé sem gerði það að verkum að Grindavíkurstúlkur voru aðeins með tveggja stiga forystu í hálfleik, 30-28. Erlendir leikmenn liðanna fóru mikin í fyrri hálfleik, Íslenskur leikmaður skoraði sína fyrstu körfu eftir 19 min í Grindavíkurliðinu og Íslenskar stelpur í Njarðvíkurliðinu voru aðeins búnar að skora 4 stig í hálfleik.
 
Í þriðja leikhluta hafði Grindavík ávallt yfir höndina en Njarðvíkurstúlkur komu þó ekki langt á eftir 4-7 stigum, Banks fór mikin á þessum tíma hjá Grindavík en hinum megin var það Dita sem sá um stigaskorið, staðan fyrir síðasta leikhlutann var 48-43.
 
Áfram hélt baráttan í síðasta leikhlutan, liðin skiptust á að skora, en þegar 3.30 min voru eftir setti Berglind Anna þrist niður kom Grindavíkurstúlkum yfir 61-60. þá kom ótrúlegur leikkafli hjá Njarðvík unnu hann hvorki meira né minna en 14-5, þar sem Njarðvíkurstúlkur nýttu sér mörg klaufamistök Grindavíkur.
 
Atkvæðamestar Banks 36 stig, 9 fráköst, Reke 10 stig, 7 stoðsendingar 5 fráköst, Helga 6 stig 12 fráköst Berglind Anna 8 stig.