Mikilvægur sigur

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Síðasta fimmtudag léku stelpurnar við Stjörnuna. Þetta var sannkallaður toppslagur því bæði lið voru jöfn að stigum á toppi deildarinnar fyrir leikinn.

Stelpurnar byrjuðu vel og sýndu strax að þær ætluðu að selja sig dýrt í þessum leik. Mikil barátta og leikgleði einkenndi leik okkar stelpna og staðan eftir fyrsta leikhluta var 7-19.

Varnarleikurinn var afar góður og í kjölfarið fylgdu auðveldar körfur. Staðan í hálfleik var 20-32.

Seinni hálfleikur var ekki eins góður og sá fyrri. En þrátt fyrir erfiðleika í sókninni var það vörnin og baráttan sem að skilaði sigrinum í hús. Stelpurnar hleyptu Stjörnustúlkum aldrei nálægt og lönduðu öruggum 12 stiga sigri í hús 49-61.

Þetta þýðir að steilpurnar sitja einar á toppi 1. deildar hafa unnið 8 leiki og tapað aðeins einum.

Berglind Anna átti afbragðs leik. Hún setti niður 12 stig og leiddi liðið bæði í vörn og sókn. Jeanne átti einnig góðan dag og stjórnaði leik liðsins með miklum sóma. Yrsa var einnig öflug, þá sérstaklega í vörninni. Gaman var að sjá að Sandra Ýr sem nýlega hefur tekið fram skóna og komst hún afar vel frá leiknum. Annars var þetta sigur liðsheildarinnar og virkilega gaman að fylgjast með stelpunum.

Stigaskor: Berglind Anna 12, Jeanne 11, Sandra Ýr 9, Yrsa 8, Mary 7 og aðrar minna.