Glæný leikjaskrá Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur er farin í prent og kemur út á fljótlega í næstu viku. Um er að ræða skemmtilegt blað um körfuboltann í Grindavík, kynning á leikmönnum liðsins ásamt viðtölum við ýmsa aðila sem tengjast körfuboltanum í Grindavík.
Blaðið verður borið út í öll hús í Grindavík um miðja næstu viku. Við viljum þakka þeim fjölmörgu aðilum sem komu að blaðinu og einnig þeim fyrirtækjum sem styrktu útgáfuna að þessu sinni.
Meðal efnis í blaðinu:
- Kjartan Adólfsson formaður unglingaráðs í áratug
- Sagan á bakvið stuðningsmannalagið
- Daníel Guðni ánægður með leikmannahópinn
- Björgvin Hafþór líkar lífið í Grindavík
- Óli Óla öðruvísi leiðtogi en bróðir sinn
- Þorleifur nýr þjálfari mfl. kvenna
- Arna Sif er töffari í vörninni
- Stigavélin Robbi Ryan
- Yngvi er nýr yfirþjálfari
- Gylfi á Papas er stuðningsmaðurinn
- Myndir úr safni Kidda Ben
- Ný stúka væntanleg
- Lokahóf yngri flokka
- Hulda Björk ung í lykilhlutverki
- Þristófer Breki Gylfason