Landsbankinn semur við körfuknattleiksdeildina

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Útibú Landsbankans í Grindavík hélt upp á 50 ára afmæli í gær og liður í hátíðarhöldunum var að öllum bæjarbúum var boðið á leik Grindavíkur og Fjölnis. 

Landsbankinn hefur ákveðið að styrkja körfuknattleiksdeildina til 4 ára og mun þessi styrkur nýtast í uppbyggingarstarf og hjálpa til við að halda Grindavík meðal fremstu liða hér á landi.

Í hálfleik skrifuðu Valdimar Einarsson, útibússtjóri Landsbankans í Grindavík, og Jón Gauti Dagbjartsson og Elías Magnús Rögnvaldsson frá körfuknattleiksdeildinni undir samninginn.

Mynd karfan.is