Dominosdeild kvenna byrjaði í gær þar sem Grindavík mætti KR í DHL höllinni.
Leikurinn var jafn í öllum leikhlutum nema öðrum en í þeim gerðu KR 17 stig gegn 6 stigum Grindavíkur. Þessi 11 stiga munur voru jafnfram í lokatölum leiksins sem endaði 62-61 fyrir KR.
Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir var stigahæst með 14 stig, 3 fráköst og 2 stoðsendingar. Helga Hallgrímsdóttir var með 13 stig og 11 fráköst.
Næsti leikur verður einnig útileikur og í þetta sinn gegn Keflavík 6.október klukkan 16:30
Mynd hér að ofan tók Jón Björn Ólafsson fyrir karfan.is en fleiri myndir af leiknum má sjá í ljósmyndasafni karfan.is