Það verður stórleikur í Dominosdeild kvenna í kvöld þegar Keflavík og Grindavík. Leikurinn fer fram í Keflavík og hefst klukkan 19:15.
Liðin unnu bæði sína leiki í fyrstu umferð þar sem spennan var í fyrirrúmi. Grindavík lagði Snæfell í framlengingu en Keflavík sigraði Hauka með tveimur stigum. Þetta gæti því jafnvel orðið nokkuð skemmtilegur leikur í kvöld.
Bæði lið eru með nýja þjálfara og breytingar í leikmannahóp sínum. Andy Johnston hefur tekið við Keflavíkurliðinu en við höfum hinsvegar fengið Jón Halldór frá Keflavík ásamt nokkrum öflugum leikmönnum.