ÍG – FSU á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

ÍG hefur leik í 1.deildinni á morgun þegar þeir taka á móti FSu í Röstinni klukkan 19:15

Liðið er skemmtilega samsett þar sem mætast nokkrir efnilegir strákar, gamlar kempur eins og Guðmundur Bragason og Helgi Jónas og svo leikmenn úr meistarflokki karla í knattspyrnu.

FSu er með reynslu úr efstu deild og gæti þetta verið hinn ágætasti leikur.  Önnur lið í deildinni eru ÍA, Skallagrímur, Breiðablik, KFÍ, Hamar, Ármann, Höttur og Þór Akureyri.