Grindavík tekur á móti Snæfell í 16. umferð Dominsdeild karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15
Snæfell sigraði Hauka í síðustu umferð og eru í 8 sæti í deildinni. Njarðvík stal 3 sætinu af Grindavík í gær þannig að Grindavík þarf sigur í kvöld til að halda sætinu mikilvæga sem skilar heimaleikjarétt í úrslitakeppninni.
Hættulegustu menn gestanna eru auk erlenda leikmannsins þeir Sigurður Þorvaldsson og Jón Ólafur Jónsson. Liðin mættust í nóvember í Stykkishólmi þar sem Snæfell sigraði 88-80 en margt hefur breyst síðan þá þannig að með góðum stuðning í kvöld þá endurheimtum við 3 sætið.