Fyrsti heimaleikur hjá kvennaliði Grindavíkur fer fram í kvöld þegar þær mæta Íslandsmeisturunum frá því í fyrra klukkan 19:15
Grindavík byrjaði mótið með tveimur útileikjum þar sem ekki náðist að landa stigum. Í kvöld er stefnan sett á fyrstu stigin og það gegn Íslandsmeisturunum. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á liðunum frá því í fyrra og munar mestu um að nokkrir lykilmenn hafa komið hingað frá Njarðvík.
Spennandi verður að fylgjast með stelpunum í kvöld sem og í vetur og hvetjum við sem flesta á að mæta. Árskort verður til sölu á leiknum á litlar 10.000 kr sem gildir á alla heimaleiki karla og kvennaliðsins í Dominsdeildinni.