Grindavík áfram í bikarúrslitaleikinn

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavík vann Fjölni í fyrri leik undanúrslita Geysisbikarsins sem fram fór í kvöld í Laugardalshöll. Grindavík vann 74-91 sigur í frábærum undanúrslitaleik. Fjölnismenn voru með yfirhöndina fram í þriðja leikhluta en þá seig Grindavík framúr og var öflugra á lokasprettinum en Grindavík náði að stinga Fjölni af í 4. leikhluta eftir að hafa verið í stöðunni 65 – 65.

Úrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn kl 13:30.

Í kvöld kemur í ljós hvort andstæðingurinn í þeim leik verður Tindastóll eða Stjarnan en þessi lið leika í kvöld í seinni undanúrslitaleiknum.

Við óskum liði Grindavíkur innilega til hamingju með að vera komið í úrslitaleikinn á laugardaginn!

Mynd: Karfan.is