Þór Þorlákshöfn var fyrsta liðið til að sigra Grindavík í vetur þegar þeir sigruðu með fjórum stigum í gær
Það var sterkur endasprettur sem skóp þennan sigur hjá gestunum en leikurinn var jafn mest allan tímann. Á sama tíma sigruðu þau lið sem eru í sætunum fyrir neðan sína leiki og því spenna að myndast í deildinni.
Stigahæstur hjá Grindavík J’Nathan Bullock með 21 stig, Ólafur með 17 og Watson 13. Næsti leikur er í bikarnum þegar Pétur Guðmundsson mætir með sína Hauka á sunnudaginn klukkan 19:15