Stelpurnar stóðu í efsta liði Dominosdeildarinnar í gær en máttu þola tap undir lokin
Leikurinn fór fram í Grindavík í gær og var jafn og spennandi allan tíman. Grindavík byrjaði vel en gestirnir komu til baka og var 1-3 stig á milli liðanna fram að hálfleik. Snemma í seinni hálfleik komumst Keflavík yfir og bættu í, voru komnar með 9 stiga forskot undir lok þriðja leikhluta. Okkar stelpur gáfust ekki upp og minnkuðu muninn í 2 stig.
Keflavík var hinsvegar sterkari á lokamínútunum og tryggði sér sigur 71-65. Fín barátta var hjá stelpunum og verður spennandi að fylgjast með þeim það sem eftir lifir móts.
Stigahæstar voru í gær Crystal Smith með 20 stig, Berglind Anna með 14 og Jóhanna Rún Styrmisdóttir með 10 stig. Crystal var með flestar stoðsendingar, 6 talsins og Helga Rut 12 fráköst