Stelpurnar spiluðu ú gær sinn sjötta leik í 1. deild kvenna . Í þetta sinn var það Skallagrímur úr Borganesi
sem var í heimsókn í Röstinni.
margar auðveldar körfur fylgdu í kjölfarið. Ingibjörg Sigurðardóttir kom mjög sterk af bekknum og er að
stimpla sig rækilega inn á sínu fyrsta ári í meistaraflokki.
Um miðjan síðari hálfleik skipti Skallagrímur yfir í 3-2 svæðisvörn og við það riðlaðist leikur stelpnanna.
Hik kom í sóknarleikinn og við það slaknaði aðeins á vörninni. Í hálfleik var staðan 46-25 fyrir stelpurnar.
Skallagrímur hélt áfram að spila 3-2 svæðisvörn í síðari hálfleik. Eftir að hafa farið yfir málin í hálfleik
gekk betur á móti svæðinu og opin skot komu í kippum. Ekki gekk alveg nógu vel að nýta þessi skot
en það kemur. Leikurinn spilaðist nokkkuð vel í síðari hálfleik og vannst góður sigur. Lokatölur 91-62
Grindavík í vil og situr liðið sem fastast á toppnum.
Liðið á mikið inni og getur gert miki mun betur þrátt fyrir góðan sigur. Ingibjörg Sigurðardóttir var
stgahæst og gerði heil 30 stig ( 6/9 í 3-stiga), Yrsa gerði 17 stig, tók 10 fráköst þar af 9 í sókn og gaf 6
stoðsendingar, Jóhanna Rún og Berglind Anna gerðu 10 stig hver.
Eins og áður segir eiga stelpurnar mikið inni. Næsti leikur er toppslagur við Stjörnuna í Röstinni. Sá leikur
er Laugardaginn 10 des. Hvetjum við alla til að leggja leið sína í Röstina og styðja stepurnar til sigurs.
Áfram Gringavík