Í kvöld fer fram leikur Grindavíkur og Fjölnis í Dominosdeild karla. Frítt er á leikinn í boði Landsbankans.
Útibú Landsbankans í Grindavík er 50 ára og liður í afmælishátíðinni er að bjóða bæjarbúum á leikinn í kvöld. Með sigri geta Grindavíkingar tryggt sér deildarmeistaratitilinn sem gefur auk þess gott veganesti í úrslitakeppnina með heimaleikjaréttinn tryggðan.
Fjölnir er hinsvegar í botnbaráttu og gefa sig allan í leikinn þannig að þetta gæti orðið hin fínasta skemmtun sem enginn má missa af.