Körfuknattleiksþingið fór fram á Sauðárkróki um helgina og var Eyjólfur Guðlaugsson sæmdur Silfurmerki ÍSÍ að því tilefni.
Viðurkenningin er veitt fyrir störf í þágu körfuboltans í gegnum árin. Guðbjörg Norðfjörð var einnig sæmd Silfurmerkinu og er myndin hér að ofan af þeim ásamt Hafsteini Pálssyni, stjórnarmanni í ÍSÍ, sem veitti viðurkenninguna.
Á körfuknattleiksþinginu var einnig kosið í stjórn KKÍ þar sem Eyjólfur hlaut kosningu.