Staðan í einvígi Grindavíkur og KR um Íslandsmeistaratitilinn er 1-1 eftir frækinn sigur hjá Grindavík í gær 79-76. Leikurinn skiptist í tvo hluta, frekar lélegar 33 mínútur og svo 7 frábærar mínútur. Þessar 7 mínútur dugðu og er byrinn núna með okkar mönnum.
Liðin þekkja hvorn annan allt of vel þannig að varnir beggja liða náðu að stoppa flæðið í sóknarleik andstæðingsins. Verður leikurinn þess vegna ekkert sérstakur á að horfa. Mikil barátta einkenndu liðin enda ekki á öðru von þegar sjálfur Íslandsmeistarabikarinn í húfi.
Grindavík byrjaði að komast yfir í 2-0. Gestirnir tóku þó fljótlega yfirhöndina og voru með þessi 12-5 stig lengstum leiks, alveg sama handritið og í fyrsta leiknum. Það stefndi því allt í fyrirsögnin “tapaðir boltar og tapað tækifæri” en þessi íþrótt er svo skemmtileg á þann veg að hún er stútfull af “turning point” eins og kaninn segir. Einn ristastór vendipunktur var í leiknum í gær þegar Daníel átti frábæran þrist og Pavel braut á honum um leið. Pavel fór út af með 5 villur og Daníel skoraði úr vítaskotinu og minnkaði muninn í 4 stig.
Var þetta minnsti munur á liðunum lengi og með því vöknuðu stuðningsmenn Grindavíkur og settust ekki niður það sem eftir lifði leiks. Frábær stuðningur úr stúkunni er bensín á menn eins og Ólaf Ólafsson sem bætti við stórum þristum og allt liðið stórbætti leik sinn.
Grindavík fór því með sigur í leiknum 79-76.
Einn maður stóð upp úr í gær. Ómar Örn Sævarsson átti sennilega sinn besta leik á ferlinum með 26 stig, 11 fráköst og hélt okkur inn í leiknum mest allan leikinn.
Næsti leikur er í Reykjavík á mánudaginn klukkan 19:15 sem mun enda vel ef allir leikmenn og stuðningsmenn mæta fullir sjálfstraust í slaginn.