Í dag var dregið í undanúrslit Powerade bikarsins þar sem Grindavík mætir Haukum á útivelli.
Í pottinum voru auk þessara liða KR og KFÍ og fara leikirnir fram 5. og 6. febrúar.
Haukar eru í 5. sæti með 12 stig. Liðin mættust í Hafnarfirði í október þar sem Grindavík fór með sigur af hólmi 100-84. Andre Smith og Páll Axel voru okkar bestu menn í þeim leik en útlendingarnir í Haukaliðinu skoruðu 60 stig af 84.
Liðin eiga eftir að mætast í Grindavík í deildinni og fer sá leikur fram 27.janúar
Grindavík ætlar sér auðvitað í úrslitaleikinn og ef þeir komast í hann þá er um að gera að taka 19.febrúar frá.