Dómaranámskeið KKÍ fer fram á laugardag

KörfuboltiKörfubolti

Körfuknattleikssamband Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði núna um helgina. Um er að ræða dagsnámskeið.

Námskeiðið fer fram á netinu og fer fram laugardaginn 5. september og er áætlað að það standi yfir milli kl. 09:30 – 16:00.

Þátttakendur taka þátt í fjarnámi á netinu og verður farið yfir kennsluefni leiðbeinanda og þátttakendur leysa verkefni saman í hóp.
Mikilvægt er að þátttakendur hafi tölvu með vefmyndavél og nettengingu til að taka þátt.

Á námskeiðinu verður farið yfir öll grunnatriðin í dómgæslu svo sem reglur og staðsetningar og hljóta þeir sem standast námskeiðið réttindi til þess að dæma hjá öllum yngri flokkum. Þar með talið í  drengja-, stúlkna- og unglingaflokkum og í neðri deildum í meistaraflokkum (að 1. deildum undanskildum). Þá geta áhugasamir farið á niðurröðun dómaranefndar í leikjum á vegum KKÍ óski þeir þess.

Skráning er hafin á heimasíðu KKÍ og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu.

Skráning fer fram hér.