David Azore til liðs við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavík hefur samið við bandaríska leikmanninn David Azore um að leika með félaginu í Subwaydeild karla á komandi leiktíð. Azore er 23 ára gamall, fjölhæfur leikmaður sem leikur sem bakvörður en getur jafnframt leyst fleiri stöður á vellinum.

Azore kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum en hann lék með  UT Arlington háskólanum við góðan orðstír. Hann var með 19,8 stig að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Azore er 192 cm á hæð og kom til landsins í dag.

„Þetta er fjölhæfur, ungur og spennandi leikmaður sem við bindum miklar vonir við. Hann er góð skytta fyrir utan þriggja stiga línuna en getur líka keyrt upp að körfunni,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur.

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur býður David Azore velkominn til félagsins!