Danielle Rodriguez framlengir við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur tilkynnir með stolti að Danielle Rodriguez hefur gert nýjan samning við félagið og mun leika með Grindavík á komandi keppnistímabili í Subwaydeild kvenna. Danielle mun jafnframt halda áfram í þjálfun hjá yngri flokkum félagsins þar sem hún hefur staðið sig frábærlega.

Danielle verður þrítug í lok árs og var með 20 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili ásamt því að gefa 6,6 stoðsendingar og taka 7,1 frákast í leik. Hún var með framlag upp á 25,2 í leik á nýafstöðu tímabili.

„Danielle hefur komið frábærlega inn í körfuboltasamfélagið hér í Grindavík og það eru forréttindi að fá að starfa áfram með henni á næsta keppnistímbili. Dani er frábær leikmaður en ekki síst frábær manneskja. Hún hefur staðið sig frábærlega við þjálfun hjá félaginu og ég veit að það er mikil gleði í okkar körfuboltafjölskyldu að Danielle verði áfram í Grindavík,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, formaður Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur lýsir yfir mikilli ánægju með að Dani verði áfram í gulu á næstu leiktíð og getum við ekki beðið með að hefjast handa.

Áfram Grindavík!

Stefanía Jónsdóttir, yfirþjálfari yngri flokka KKD Grindavíkur, og Danielle Rodriguez.