Dagur Kár framlengir við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Dagur Kár Jónsson hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og leikur áfram með félaginu á næstu leiktíð.

Dagur hefur verið í herbúðum Grindavíkur með hléum frá árinu 2016. Hann spilaði í Austurríki tímabilið 2018/2019 en hefur verið lykilmaður í liði Grindavíkur á undanförnum árum.

„Ég er virkilega ánægður að hafa gert nýjan samning og líður ótrúlega vel í Grindavík. Við erum að halda í sama kjarna fyrir næsta tímabil sem er mjög mikilvægt og eigum bara eftir að verða betri,“ sagði Dagur Kár eftir að hafa undirritað nýjan samning.

Kkd. Grindavíkur lýsir yfir mikilli ánægju með að halda Degi Kár áfram í herbúðum félagsins. Dagur Kár er einn af bestu leikstjórnendum í deildinni og förum við afar spennt inn í nýtt keppnistímabil með hann áfram í gulu!

Frekari frétta er að vænta af leikmannahópum beggja liða Grindavíkur á næstu dögum.

Áfram Grindavík!

💛💙