Charisse Fairley semur við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindvíkingar hafa samið við þýsk-bandaríska framherjann Charisse Fairley um að leika með liðinu í Subway-deild kvenna á næsta tímabili.

Charisse er fædd í Þýskalandi árið 1999 og hefur síðustu þrjú tímabil leikið í háskólaboltanum vestanhafs, síðasta vetur með CSU Pueblo.

Charisse er hávaxin framherji, eða 180 cm, sem getur bæði leikið fyrir innan og utan teiginn og látið rigna fyrir utan þegar þannig liggur á henni. Hún tók við stærra hlutverki og auknum mínútum í vetur hjá sínu liði, þar sem hún var að skila 11 stigum og 5 fráköstum að meðaltali í leik.

„Charisse er spennandi leikmaður með mikið „upside“ og hún á örugglega eftir að taka næsta stökk á sínum ferli með okkur. Það sést alveg þegar maður skoðar ferilinn hennar í skólanum að þetta er leikmaður sem er tilbúinn að takast á við stærra hlutverk og meiri ábyrgð. Það má segja að hún sé fyrsta púslið í myndina fyrir næsta tímabil hjá okkur en við erum hvergi nærri hætt!“ – Sagði Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.

Áfram Grindavík!